07.01.2007 18:46:51 / birna-3

Jæja þá ;)

Ég skal þá henda inn einu bloggi ;P

Það er bara allt gott að frétta..

Á þriðjudaginn klæddi ég mig í fyrsta skipti í takkaskó eftir að ég sleit á mér krossböndin, það var bara nokkuð góð tilfinning. Ég má samt ekki byrja alveg á fullu, ég má bara sparka smá, rekja boltann, æfa tækni og eitthvað. Svo ef allt gengur vel þá má ég byrja að spila í feb-mars :D Maður verður bara að vera duglegur að styrkja þetta allt þanngað til ;)

Á miðvikudaginn áttu Anna og Róbert afmæli, við skelltum okkur í bæinn og hittum Evu.  Það var ekkert smá gaman hjá okkur, kíktum fyrst í Kringluna á útsölurnar og svo í Smáralind.  Við enduðum svo á því að fá okkur að borða á Pizza Hut. Frábær dagur. Um kvöldið hitti ég svo Þór :P

Á fimmtudaginn fór elskulega systir mín heim til sín til Kaupmannahafnar, það er alltaf svo leiðinlegt þegar hún fer.  En hún er að fara að koma aftur eftir 11 daga, þá þarf hún ekki að læra allan daginn svo það verður stuð ;)  Eftir að ég hafði fylgt henni upp á flugstöð fór ég með Þór í bæinn, hann var að fara að selja skólabækurnar sínar.

Töfluafhending var í skólanum á föstudaginn og ég fékk alveg ágæta töflu, bætti reyndar næringarfræði inn.  Ég ætla að reyna að ná 22 einingum á þessari önn, sjáum til hvernig það gengur :D

Í gærkvöldi fór ég enn AFTUR í bæinn, eða reyndar Kópavoginn.  (Ég er sko vanalega ekki svona oft á höfuðborgarsvæðinu, haha).  En okkur Þór langaði svo að sjá myndina Little miss sunshine ;)  Hún var ekkert smá góð, það verða allir að sjá hana, maður liggur gjörsamlega í hláturskasti!! ;D

Í dag vaknaði ég kl. 12, skellti mér út í íþr. hús í ræktina. Hafdís þú mannst loforiðið ;) Svo er ég bara búin að horfa á Nágranna ;D

Nokkrar myndir úr Little miss sunshine :D

Draumabíllinn minn ;)

Algjör dúlla

Birna kveður ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.12.2006 13:16:28 / birna-3

Áramótin á morgun ;)

Ætlaði bara að láta vita af mér ;)

Kem með blogg 1. janúar 2007


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 00:10:32 / birna-3

COMEBACK !!

Ég hef hér með ákveðið að byrja aftur með þessa síðu, ég er búin að sakna hennar alveg smá :P  Svo býr elskulega stóra systir mín í Danmörku og henni finnst svo gaman að fylgjast með mér þannig þetta er líka gert fyrir hana og þar sem hún er að fara að koma heim hef ég ákveðið að byrja aftur!! ;D  

En.. ef þið viljið vita hvað ég gerði á laugardaginn þá hvet ég ykkur til að kíkja á síðuna hennar Evu Jennýjar, öllu lýst verulega vel þar www.blog.central.is/-evajenny !!

En á sunnudaginn skellti ég mér í bæinn með Þór, Hafdísi og Garðari.  Við byrjuðum á því að kíkja á fótboltaleik með Evu og Önnu :P  Við vorum svona næstum allan fyrri hálfleikinn og sáum eina markið sem var skorað :D  Eftir hann kíktum við svo í Kringluna og svo í Smáralind.  Við tókum eftir því að pelsar eru komnir í tísku þannig um að gera að skella sér á einn hvort sem þið eruð snobbaðar konur eða bara töff gæjar !! Löggunum finnst það allaveganna ógeðslega töff ;)

Í dag fór ég fyrst að kíkja á einkunnirnar mínar, mér gekk bara vel og er bara mjög sátt :D   Svona kl. hálf 4 náði Þór svo í mig á svakalegum Kaffitársbíl og við lögðum af stað í bæinn.  Þór var að flytja kaffi á nokkra staði í bænum.  Þetta byrjaði svo allt þegar við komum til Hafnafjarðar.  Þar átti hann að skila einhverjum vörum en það var engan veginn hægt að finna staðinn :O  Jæja við fundum hann að lokum.  Þar fyrir utan var bara þvílíkt stöðuvatn!! Ég held að ég hafi aldrei á ævi minni séð jafn stóran og djúpan poll..  jæja Þór kom með nokkur afar góð gullkorn við þennan poll ;)  Þsðan var ferðinni svo heitið í Kringluna, þar gekk bara allt að óskum !!  Síðan átti næsti stoppustaður að vera við Landsspítalann á Dalsbraut en við keyrðum á Landsspítalann í Fossvogi, svo vorum við búin að leggja þar og Þór hringir í konuna en þá var búið að loka móttökunni, jæja svo ætlaði Þór að setja bílinn í gang neinei hann bara fór alls ekki í gang og alls konar diskóljós í mælaborðinu.  Á meðan við biðum svo eftir hjálpinni fórum við inn í spítalann því það var alveg ofur kalt í bílnum.  Á spítalanum var einhver kona að raða einhverju dóti inn í skáp og hún var ekkert smá dugleg, tók hvern einasta hlut og prófaði á alla staði, mjög gaman að fylgjast með henni.  Svo var eins og maður væri á símstöð því Þór var með tvo síma á sér og þeir hringdu endalaust oft og alltaf missed call þegar hann hafði lokið einhverju símtali!!  :D  Sagan er nú heldur betur ekki búin !!  Jæja hjálpn kom og reynt var að starta bílnum eftir miklar prófanir virkaði þetta!!  vá hvað við vorum ánægð keyrðum af stað .. en sú ánægja stóð ekki lengi yfir, því á næstu ljósum fór diskókerfið aftur í gang á mælaborðinu og nú var bara STOP með í pakkanum!.. Þór náði sem betur fer að keyra upp á næstu umferðareyju og þar drap bílinn á sér og aftur var hringt á hjálp.  Aftur fór bíllinn í gang og við lögðum af stað og reyndum að forðast öll rauð ljós og vorum komin við MH og vorum að fara að beygja niður á götuna þarna sem Kringlan stendur við !!  Neinei þá fer allt aftur í gang svo Þór beygði inná þar sem Bakarameistarinn er og keyrði svo áfram bakvið það hús, þá lentum við á gatnamótum og þar var bíll fyrir framan okkur og þá kallaði Þór alveg ÁFRAM ÁFRAM !!!  vá hvað ég hélt að ég myndi deyja úr hlátri, ekki nóg með það hikstaði bíllinn endalsut mikið og við hentumst alltaf svona fram og tilbaka.  En Þór náði á lokum að koma bílnum á eitthvert bílastæði rétt við MH.. Vá hvað ég hélt að ég yrði ekki eldri !!  En við vældum gjörsamlega úr hlátri.. :D  við enduðum svo með því að fara með manninum sem var búinn að elta okkur út um allan bæ í bíl og keyrðum stuttu seinna svo suður!!  Vá hvað þessi ferð á eftir að vera eftirminnileg ;D 

Ég vona að þetta blogg hafi verið skemmtilegt, ég veit ekki hvort þetta sé svona had to be there.. en ég er allaveganna byrjuð aftur með þessa síðu held ég ;)  hún á allaveganna eftir að endast út jólin ;D

-Birna


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 21:28:46 / birna-3

Nýtt blogg !! :D

Já, ætli það sé ekki rétt hjá ykkur að það sé kominn tími á eitt blogg ;).. En annars er bara allt gott að frétta af mér :P  Síðustu vær vikur hefur verið mikið að gera hjá mér í skólanum, endalaus próf og auðvitað eru þau alltaf öll sett á sömu vikurnar og helst sömu dagana , alveg með ólíkindum :P

Ég er svo bara byrjuð að mæta í íþróttatíma og það er ekkert smá gaman :D   Mamma er samt svolítið áhyggjufull yfir þessu öllu saman því þegar ég kemst í einhverja keppnisleiki þá á ég það til að missa mig algjörlega og það er auðvitað ekki gott fyrir hnéð !! :S Ég verð bara að passa mig :P  

Um helgina fór ég í Samferðalag til Þórsmerkur, mér fannst bara mjög gaman :P   Reyndar vorum við eiginlega ekki að gera neitt þarna nema að slappa af :P  Reyndar fóru flestir í gönguferð, en ég missti af því þar sem hnéð á mér er ekki tilbúið fyrir fjallgöngur .. Á meðan sú ferð var farin vorum við nokkrir krakkar bara í skálanum og áttum að vera ða þrífa, við áttum að vera búin með alla þrjá skálana áður en þau kæmu tilbaka:P   Þau voru varla lögð af stað þegar við vorum búin :P  En ég er stundum svo seinheppin :P  Þegar við vorum fyrir framan FS og vorum að fara ða leggja af stað í ferðina þá tók ég upp kókflösku og opnaði hana :P  Hún hafði víst eitthvað verið hrist og allt gaus auðvitað upp úr henni og ég tók ekkert eftir því strax og hellti út um allt!! Heyrði þetta er ekki búið :P  Þegar við vorum svo að bíða í Þórsmörk eftir að leggja af stað þá tek ég upp aðra kókflösku og hvað gerist ???  Aftur gusast allt út um allt!!  Ég hélt að ég yrði ekki eldri !! ;)

Í gær var ég búin í skólanum kl. 10,, en þá þurfti umsjónarkennarinn minn einmitt að senda mér sms um það að ég ætti að koma og velja í stoði, ég beið eftir því og svo skutlaði afi okkur Írisi út í Garð :P  Þegar ég var komin fyrir framan dyrnar þá áttaði ég mig á því að ég hafði gleymt lyklunum inni !! Þá fór ég heim til ömmu og afa og það reddaðist :P  Kl.4:30 skutlaði mamma okkur Írisi til Grindavíkur :P  Þar var bara mjög gaman.  Kvöldið endaði svo með því að ég fór með Níels og co í bíó á Jackass, hún var ekkert smá fyndin.. mæli með henni ;)

Ég kveð ykkur að sinni ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

01.10.2006 21:17:44 / birna-3

1.okt.

Gærdagurinn var mjög skemmtilegur ! :D  Ég vaknaði kl. 8 bara alveg sjálf einhverra hluta vegna og byrjaði bara að læra ;P  Allt í einu ákváðum við mamma bara að skjótast í bæinn.  Ég keypti mér eina úlpu og mamma keypti sér buxur, svo túrinn var vel þess virði ;)  Þegar heim var komið borðaði ég og svo fór ég að finna dótið mitt til fyrir stelputeitið sem var haldið heima hjá Gullu! ;)  Það var svakalegt stuð á okkur stelpunum, mér , Hafdísi Ástu, Berglindi, Írisi og svo auðvitað Gullu :D  Við skelltum okkur í pottinn og höfðum það nice :P Þegar við vorum orðanar leiðar á því að sitja í pottinum þá fórum við inn og gerðum okkur klárar. Íris á mettímann í því ;D   Þegar við vorum allar ready og Fannar kærastinn hennar Írisar mættur á svæðið þá fóru einhverjir að spila :D  Alveg svakalega spennandi spil, allaveganna fyrir mig og Fannar :D  Síðan var það afmælið hennar Tinnu Rutar.  Þar var bara hörku stemning nema enginn að dansa, við skelltum okkur á gólfið og dönsuðum  í smá stund alltaf eitthvað ráp á okkur fram og tilbaka :P  Þá áttaði ég mig á því að ég var gjörsamelga að drepast úr hungri, en auðvitað reddar maður því og Kalli skutlaði okkur Írisi í Ný-ung.. mmm samlokan var alveg svakaleg ;)   Síðan var ferðinni heitið aftur í afmælið :D   Rétt fyrir 2 kom svo löggan og öllum var hent út !! :S   Ég fór þá bara beint heim og í tölvuna og síðan bara að sofa :D

Í dag er ég ekki búin aðgera neitt eiginlega .. bara eitthvað aðeins að læra :D   Það eru þvílíkar framkvæmdir á heimilinu svo það er enginn vinnufriður.. neinei segi svona :P

Bið að heilsa í bili, læt eina mynd fylgja af Dilönu af því hún var/er á landinu :D

Birna


» 9 hafa sagt sína skoðun

24.09.2006 21:00:07 / birna-3

24. sept

Mjög langt síðan ég bloggaði,, maður verður nú að gera eitthvað í því ;D

En já vikan var ofur fljót að líða, bara venjulegir skóladagar nema á föstudaginn því þá var göngudagur :D  Hann var bara alveg ágætur, ég og Hafdís vorum alveg að meika það :P  Ég verð nú bara að viðurkenna það að ég hef aldrei á ævi minni verið í svona lélegu formi.. sjitturinn ég var komin með hlaupasting eftir labb.. isss :S   Á föstudagskvöldið fórum við Hafdís svo í bíó á myndina Step up,, vá hvað hún var góð, ekta stelpu mynd :D   Allur pakkinn í þessari mynd ;P  Þegar ég var nýsest fyrir framan tölvuna þá hringdi Anna og sagði að ´hún, Laufey og Kristín Ósk væru staddar í Garðinum og hvort ég ætlaði ekki út að hitta þær.  Auðvitað skellti ég mér út með þeim og hitti fullt af krökkum. :D

Á laugardaginn hringdi Anna í mig eða sendi mér sms, ég bara hreinlega man það ekki :P  En þá voru þær Eva hættar í fótbolta og mættar út í sjoppu með franskar.  Ég skellti mér af stað til þeirra og við fórum svo heim til Önnu :P  Ég fór fljótt bara heim.  Um kvöldið hittumst við þrjár ég, Eva og Hafdís heima hjá Hafdísi og vorum að skemmta okkur þar og gerðum okkur svo tilbúnar. Svo fórum við upp í Mánagrund þar var Jórunn nefnilega með afmælið sitt, þar var bara hörkustemning :D

Í dag vaknaði ég og fór bara beint að læra :P  Síðan kl. korter í 4 hitti ég stelpurnar og við löbbuðum af stað upp í samkomuhús á uppskeruhátíðina! :D  Það var ekkert smá skrítið að fara á uppskeruhátíð og vera ekki einu sinni í liðinu,svo þegar 3. flokkur átti að fara upp þá sat ég bara ennþá niðri, hehe:D  En já það fengu fullt af fólki verðlaun :D Ég veit ekki alveg hvort ég muni þetta allt en.. ég fer ekki neðar en 4. flokkur eldri :D   Jú ég verð samt að nefna það að litla systir mín fékk besti leikmaður í sínum flokki, kjellan að standa sig :D

En já ..        4. flokkur kvenna eldri :  besti félaginn = Guðbjörg Helga                                                                           mestu framfarir = Anna Helga                                                                              besti leikmaður = Agnes

                  4.flokkur karla eldri   :     besti félaginn =  Tómas                                                                                       mestu framfarir =  Aron                                                                                        besti leikmaður = Róbert Örn

                  3.flokkur kvenna yngri  :  besti félaginn = Ástrós Lind                                                                                          mestu framfarir = Eva Jenný                                                                                        besti leikmaður = Dagmar

                3.flokkur kvenna eldri  :    besti félaginn = Magnea                                                                                                mestu framfarir = Halldóra                                                                                               besti leikmaður = Eydís Ösp

Svo svona bestu leikmenn ársins/ bestu leikmenn yngri flokka Víðis/Reynis = Róbert og Eydís

Til hamingju allir :D  Endilega að láta við vita ef þetta er eitthvað vitlaust  ;)

Þetta blogg dæmi er með einhverja svaka stæla hérna við mig ,, þetta er asnalega sett upp,, ég kann ekekrt á þetta :S  Vonandi skiljið þið þetta

Ég segi þetta gott svona :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.09.2006 20:52:03 / birna-3

Helgin 15-17 sept :D

Já helgin var ekkert smá skemmtileg :P   Ég var búin í skólanum kl. 14:10 og fór þá beint í sjúkraþjálfun, mamma náði svo í mig og við vorum eitthvað að stússast í Kef.  Síðan fór ég bara heim í sturtu og allan þann pakka ;D  Ég, Eva og Hafdís hittumst svo heima hjá Hafdísi og vorum bara að snakke sammen, alltaf gaman að sitja bara og spjalla um þetta og hitt :D  Við ákváðum svo að skella okkur í bíó á myndina United 93 eða flugvélamyndina eins og við stelpurnar viljum kalla hana.  Gulli mætti einnig á svæðið :D  Myndin var ekkert smá langdregin, eiginlega ekkert að gerast fyrr en síðustu 10-15 mínúturnar :P Eftir myndina fórum við svo bara heim ;)

Á laugardaginn vakanði ég kl. 11 ;) og fór strax að taka til í herberginu mínu og tók allan fataskápinn minn í gegn, ekki veitti af ég var ekki enn búin að ganga frá fötunum mínum síðan ég kom frá DK .. :D   Síðan fórum við stelpurnar til Keflavíkur, kíktum þar í einhverjar búðir og svo á Subway.  Ég skil bara ekki hvernig þetta getur verið svona gott :D mhmmm ;)  Þegar við vorum komnar heim vorum við eitthvað að tala um að fara í Bláa lónið, ég var samt ekki alveg að nenna fyrst en auðvitað skellti ég mér,  það er ekki alltaf sem við getum verið 3 vinkonurnar saman, desværre :S   Það var bara mjög slakandi og gott þar ;P  Pabbi náði svo í okkur svona um 7 leytið og við fórum bara heim :P   Um kvöldið komu svo Eva Jenný, Hafdís, Róbert, Anna Helga, Gulli og Viktoría heim og við vorum bara að chilla, horfa á gömul myndbönd sem Björg á með Hanson og Backstreet boys, frekar svalt :D  Við horfðum svo á Coach Carter ;)  Síðan fóru allir bara heim og ég fór bara að sofa :D

Í dag lærði ég svo , kíkti svo í heimsókn til Hildar frænku og co og svo til ömmu og afa á Garðbrautinni :P Þar horfði ég á leikinn og svo inná milli á heimkomu Magna :P  Ég og Hildur frænka vorum ekki nógu sáttar með það hve mikið var talað á meðan fólkið var að syngja :S Við sungum samt með því sem við náðum að heyra :D  En ég er ekki alveg nógu sátt með úrslitin í leiknum Manchester- Arsenal en tölum ekkert meir um það :S  

Ég er búin að vera að reyna að setja myndirnar inná þetta blogg- dæmi.. ekki alveg að virka :S   En ég reyni bara seinna :P

-Birna


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 21:03:51 / birna-3

Skólinn :D

Þá er ein vikan byrjuð ennþá, þessi tími er ekki alveg eðlilegur, svoleiðis skýst áfram :P  En það er heil skólavika framundan ..

Í dag átti skólinn 30 ára afmæli og það var alveg svakaleg 30 metra kaka á boðstólnum.  Ég smakkaði hana reyndar ekki :S  En hún var mjög girnileg  :P 

 Síðan kom ég heim eitthvað um hálf 5 og byrjaði strax að læra :P 

Um helgina er Eva Jenný að fara koma í bæinn og það verður stuð :D   Hlakka ekkert smá til ;D  

-Birna


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.09.2006 16:35:29 / birna-3

Busavígslan

Ég er ekki að ná því að það er komin vika síðan Ljósanóttin var!! Vá hvað tíminn er fljótur að líða.  Ég fór í þrjú próf í þessari viku, já það er bara byrjað á því strax ,, :D

Í gær var svo busadagurinn mikli, hann var ekkert smá skemmtilegur.  Þegar við komum í skólann kl. 8 var krotað á allt andlitið á okkur, líka svona svakalega vandvirkt ;)  Svo þurftum við að leggjast á gólfið og skríða, ég og Hafdís Ásta vorum í þessu saman, að gera kollhnýsa og allan pakkann þegar við vorum komnar út á enda á 2. hæð þá átti Hafdís sig á því að hún átti að fara upp á 3. hæð,, greyið ;) Svo var bara íslensku tími frekar þægilegur og svo að honum loknum að leggjast aftur á gólfið og skríða upp á 3.hæð í dönsku.  Dönskutímarnir eru langskemmtilegustu tímarnir í skólanum án efa :D En já í dönskutíma vorum við bara í hengimann og einhverjum þrautum.  Eftir tímann var öllum busunum skellt inn í eina stofuna og mikið svakalega var þungt loft!! og heitt!!!!!!  :P  En hvað um það ,þar hoppuðum við og gerðum allar hundakúnstir.  Síðan leiddumst við tvö og tvö saman niður í salinn, strákur-stelpa. Ég veit bara ekkert hvern ég leiddi ;P  Niðri í sal gerðum við ekkert merkilegt nema svárum þess heit að gera allt sem stóru, vondu krakkarnir segðu okkur að gera .. hehe:D Næst lá leið okkar niður á Hafnargötu fyrir framan 88-húsið þar áttum við að borða líka þennan dýrindis mat og gera allskonar rugl t.d. að skríða í gegnum eitthvað netadæmi og hlaupa í hringií kringum keilu og horfa ofan í hana á meðan, varð frekar ringluð :S Síðan var það að fara ofan í körin og svo að kyssa sætu fiskana ..mmm :D  Svo vorum við smúluð frá toppi til táar.  Mér var ekkert smá kalt og ég var nýbúin að vera með hálsbólgu og kvef !!!              

39767_IMG_0047

Mega flottur svipur á Hafdísi og lýsir algjörlega kuldanum!! ;)

39782_IMG_0120

Fallegt, það munar bara engu að maður fái tennurnar á þessu kvikyndi bara upp í sig ! :S

Enduðum svo á því að borða pizzur og drekka kók upp í skóla.  Eftir þetta allt labbaði ég holdvot til ömmu og afa , sem betur fer ekki langt að labba og fór þar í sturtu.  Sofnaði svo aðeins.  Svo náði mamma í mig og við og Bergrún fórum í bæinn af því ég var að reyna að leita mér af einhverjum spjörum til að fara í á ballið.  Kl. 7 eða um það fór ég heim til Söru og þaðan fórum við heim til Margrétar Láru.  Þar hittumst við nokkrar píur. Svaka stuð þar.  Við fórum á ballið svona hálf 11 -11 eða mig minnir það.  Ballið var algjör snilld. Reyndar fannst mér Ingó og bandið hans best.  Kl. hálf 3 hætti kallinn svo að spila og ég og Hafdís ætluðum nú bara að fara að lalla okkur í rútuna sem átti að skutla okkur heim !!  en nei nei við misstum af hanni !!! Hún hafði farið korter yfir!  Svo við Hafdís stóðum fastar í Reykjanesbæ ásamt reyndar fullt af fólki!! ég meina það hver haldiði að geti alltaf verið að fylgjast með klukkunni þegar maður er að skemmta sér. isss.  En pabbi var svo góður að skutlast eftir okkur :P  En þegar ég kom af ballinu var ég algjörlega raddlaus, ég bara get varla talað og ég er það því miður enn :S   Það er svona þegar maður er sprautaður ísköldu vatni og fara svo á ball og syngja hástöfum með .. hehehe:D   En ég vil þakka Margréti fyrir allt þarna fyrir ballið og einnigs telpunum sem voru hjá Margréti fyrir frábæran hitting.  Og svo líka mega takk til allra dansfélaga  ;P

Helgin er að mestu leiti óplönuð, svo hún verður bara að koma í ljós .. :D 


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.09.2006 22:28:24 / birna-3

Ljósanótt!! ;D

Já um helgina var Ljósanótt og hún var bara nokkuð skemmtileg ;D  Ég hitti Guðrúnu frænku mína í Kef á föstudaginn og við fórum að rölta um !! Hittum alveg fullt af fólki t.d. Róbert, Evu Jennýju, Hafdísi Ástu, Guðbjörgu Evu, Ástrósu, Steffý, Magneu og alveg endalaust nenni ekki að nefna það allt :D  Eftir góðan göngutúr upp og niður Hafnargötuna þá fórum við Róbert og Guðrún heim til ömmu og afa og biðum þar eftir að pabbi næði í okkur!!  Amma var með svakalegar æfingar við að ná flugu, ég held að Róbert hafi aldrei séð annað eins,, hehehe:D  Amma er algjör snillingur ;)  Ég og Guðrún fórum svo aðeins heim með Róberti og samferðuðum svo öll uppeftir og ég og Guðrún fórum heim að sofa ! :D

Á laugardaginn fórum við frænkurnar frekar snemma niður í bæ, tókum meira að segja þátt í skrúðgöngunni, vorum einmitt 6 úr mínum árgangi ..hehehe:D  Síðan var bara hörku stuð, borðuðum Subway með Helenu og Justinu og hittum svo Hafdísi og Evu þar ;)   Á meðan Skítamórall var þá hittum við Söru, Drífu og Evu ,, ;D  Um kvöldmatarleytið var svo matur hjá ömmu og afa !! Vá hvað það var gott kjötið sem afi grillaði !! mmm ;D   Svo lá leið okkar bara niður í bæ, hittum Önnu og skvísurnar með henni smástund en löbbuðum svo niður Hafnargötuna og hittum þar Róbert, Viktor, Aron og Hannes og vorum eitthvað með þeim á meðan trommudæmið og Sálin voru!! ;D  Vá hvað það var mega gaman á meðan Sálin var !! Heavy hress kona að kenna okkur að dansa og var bara alveg í ruglinu,, hehehe:D  Stebbi og hans menn voru líka svakalegir ;D  Flugeldasýningin var frábær :D  Við vorum ekkert lengi frameftir í Keflávík kíktum aðeins á liðið fyrir framan Ný-ung,  Sara og skvísur voru nokkuð hressar :D   Sé svolítið eftir að hafa ekki tekið myndavélina með!! :S  En síminn svosem reddaði þessu að einhverju leiti ;D

Ég kveð að sinni með von um einhver komment :D  hehe

-Birna


» 10 hafa sagt sína skoðun

03.09.2006 21:59:04 / birna-3

Ný síða!!

Þá er ég búin að færa mig um set og komin aftur yfir á blog.central, ég einfaldlega nenni ekki að læra á hitt ;) 

Vonandi verður þetta skemmtileg síða

-Birna


» 0 hafa sagt sína skoðun